|
Þessi vefur er tilraunaverkefni við Menntaskólann
á Akureyri, unnið með styrk frá Þróunarsjóði framhaldsskólanna. Á vefnum er stutt ágrip íslenskrar nútímahljóðfræði, sem ég hef
áður gefið út fjölritað, en er hér lagað að nýju formi..
Viðfangsefnið er hljóðfræði nútímamáls,
með öðrum orðum hvernig maðurinn notar sér hæfileikann til að gefa frá
sér málhljóð til að tala. Þar er fjallað um það hvar og hvernig
hljóðin myndast og hvað það er sem veldur því að við notum tugi
hljóðmyndunarafbrigða til þess að tala einfalt mál. Tilgangurinn með
þessu er að nokkru leyti skýrður hér í inngangi.
Þessi hljóðfræði er ætluð til notkunar í
efstu bekkjum grunnskóla og fyrstu bekkjum framhaldsskóla. Hér ræður ekki
sú vísindalega nákvæmni sem á við í háskóla. Hins vegar er leitast við
að skýra á almennan og aðgengilegan hátt myndun hljóða
og reynt að gera sem gleggsta grein fyrir framburði með því að beita eins
konar framburðarstafsetningu. Auk þess eru dæmi um framburð og hljóðmyndun
lesin á vefinn og notendur geta heyrt þau svo framarlega sem tölvan er búin
hljóðkorti og fyrir hendi eru hátalarar eða heyrnartól. Hljóðskrárnar
eru undir krækjum með rauðum lit
og það kann að taka nokkur andartök að tengjast þeim.
Efnið skiptist í nokkra þætti.
- Í Inngangi
er fjallað um mannamál, hæfileika mannsins til að tala og aðferðir til að lýsa mannamáli
í tali og riti.
- Í þættinum Talfærin er fjallað um þau
líffæri sem notuð eru við myndun talhljóða.
- Í kaflanum Málhljóðin er fjallað almennt um
hljóð málsins, myndunarhætti þeirra og myndunarstaði.
- Í köflunum Sérhljóðin og Samhljóðin er lýst í smáatriðum
myndun hvers einstaks hljóðs sem notað er í íslensku nútímamáli.
- Loks er sérstakur kafli með æfingum.
Allar athugasemdir og
ábendingar eru vel þegnar.
Sverrir Páll
Síðast
yfirfarið 07.10.2003
- svp
|