Sverrir Páll Erlendsson
150748 2249
ferilsskrá
Uppruni:
- Fæddur á Siglufirði
- Foreldrar: Sigrid Bjarnason og Erlendur Pálsson
Menntun:
- Landspróf frá Gagnfræðaskóla Siglufjarðar vorið 1964
- Stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1968
- BA-próf frá Háskóla Íslands haustið 1974
- BA-próf hið meira með þremur stigum (fullu námi) í íslensku og þremur stigum (fullu námi einnig) í sagnfræði og tveimur BA-ritgerðum, hvorri í sinni grein: Bjúgnaorð í íslensku, rannsóknarverkefni um mállýskur í íslensku, vorið 1972; Fljót í Skagafirði á 19. öld, rannsóknarverkefni í byggðasögu, sumarið 1974.
- Uppeldis- og kennslufræði til kennsluréttinda 1976.
- Hef tekið þátt í fjölmörgum sí- og endurmenntunarnámskeiðum flest sumur frá því 1976. Auk þess fjölmörg fjarnámskeið í tölvunotkun og kennslufræði og kennsluaðferðum með tölvum nú síðustu árin.
- Varði einu ári til endurmenntunar í ársleyfi frá kennslu, dvaldist í Aix en Provence í Suður-Frakklandi og stundaði nám í frönsku, frönskum bókmenntum og franskri menningu.
- Einn vetur í söngnámi í Tónlistarskóla Akureyrar. Ýmis námskeið meðal annars í tónlist og matargerð.
Störf:
- Á bernskuárum síldarvinna og sveitastörf.
- Á unglingsárum vinna við síldarsöltun, handlang við smíðar, í síldarbræðslu á Siglufirði og á Seyðisfirði, þrjú sumur í símavinnu á Siglufirði og Skagafirði.
- Á mennta- og háskólaárum símavinna nyrðra, eitt sumar við að byggja álverksmiðju í Hafnarfjarðarhrauni, tvö sumur í bæjarlögreglu í Hafnarfirði, þrjú sumur í vegalögreglu ríkisins.
- Veturinn 1969-70 kennari og fyrsti stjórnandi og gæslumaður heimavistar við Gagnfræðaskólann í Neskaupstað. Þar ritstjóri bæjarblaðs.
- Settur kennari við Menntaskólann á Akureyri haustið 1974. Skipaður menntaskólakennari ári síðar. Hef starfað þar óslitið og starfa enn.
- Félagsmálaráðunautur við MA frá 1976 - 1998. Hef unnið mikið að skipulagi félagsmála í skólanum og verið leiðbeinandi nemenda í þeim málum. Meðal annars stjórnandi og þjálfari spurningaliðs og kappræðuliðs nemenda.
- Frá haustinu 1998 hef ég verið ritstjóri við Vef MA, hef skipulagt hann að nokkru leyti og meðal annars haldið úti fréttasíðu á vefnum. Í starfinu er meðal annars fólgið að gera vefsíður, vinna myndir, færa inn efni og hafa eftirlit með því að aðrir endurnýi og lagfæri efni (á sérvefjum námsgreina) og haldi ákveðnum stíl á vefnum. Er formaður vefnefndar, sem er hópuur kennara og annarra starfsmanna sem er til ráðuneytis um þróun vefjarins. Þessu fylgir talsvert starf við að leiðbeina kennurum í að nota FrontPage vefforitið, sem skólinn á afnotarétt af.
- Er stjórnandi kynningarnefndar MA, sem meðal annars hefur unnið að því að skapa dagskrá fyrir nemendur 10. bekkjar sem koma í kynnisheimsókn í MA og gera áætlanir um kynningu skólans út á við. Auk þess hefur fallið í mitt verk að vera tengiliður skólans við fjölmiðla.
- Um 10-15 ára skeið stjórnandi brautskráningarhátíðar MA, það starf hefur verið nefnt siðameistari. Skipulagði og hannaði yfirbragð skólaslita í Íþróttahöllinni á Akureyri 17. júní og síðar hátíðarveislu nýstúdenta, sem um árabil hefur verið haldin í sama húsi að kvöldi sama dags. Jafnframt umsjón með sýningum, sem haldnar hafaverið í húsum skólans í tengslum við brautskráningu stúdenta.
- Skrifaði leiklistargagnrýni í nokkur ár í Akureyrarblöð.
- Skrifaði vikulega pistla um menningu og málfar í sunnudagsblað Morgunblaðsins um árabil og hef auk þess iðulega unnið að öðrum greinaskrifum auk þess að taka viðtöl fyrir Morgunblaðið.
- Í nokkur ár blaðamaður og ljósmndari Morgunblaðsins á Akureyri í sumarafleysingum.
- Tæpt ár fastur starfsmaður Ríkisútvarpsins (þegar kennarar sögðu upp störfum sínum og gengu út úr skólum) og skipulagði þá í fimm manna hópi manna RÚVAK, fyrsta svæðisútvarp á Íslandi (eignað Jónasi Jónassyni). Dagskrárstjóri og stjórnandi útsendingar auk þess að hafa viðtöl og velja tónlist fyrir Svæðisútvarpið.
- Um 6 ára skeið nokkuð reglulega með vikulega tónlistarþætti í RÚV, fyrst á Rás 1 og síðar Rás 2. Blönduð tónlist, mikið með djassívafi.
- Endurgerði fyrirkomulag á gerð handrita fyrir útvarpsþætti og sú endurgerð var höfð að fyrirmynd næstu árin. Kenndi handritagerð og þáttarstjórn á vegum RÚVAK.
- Las í Ríkisútvarpinu framhaldssöguna Kæri herra Guð, þetta er hún Anna (eigin þýðingu) og hef auk þess mjög oft lesið lengri og skemmri texta í dagskrárefni annarra.
- Annaðist ásamt Þórhalli Bragasyni þáverandi skjalaverði Akureyrarbæjar spurningaþátt sveitarstjórna í Eyjafirði fyrir Ríkisútvarpið.
- Hef kennt á námskeiðum hjá Háskólanum á Akureyri, Skapandi skrif.
- Hef haldið námskeið m.a. hjá Kaupþingi Norðurlands, t.d. í glærugerð og notkun glæra við kynningar og fyrirlestra, greinaskrif, hraðlestur o.fl.
- Hef haldið fyrirlestra um fjarkennslu og kennsluaðferðir framtíðar og sótt ráðstefnur um þau mál heima og erlendis.
Önnur störf og viðfangsefni:
- Á háskólaárum í stjórn Mímis, félags stúdenta í íslenskum fræðum og ritstjórn Mímis, tímarits félagsins.
- Tvö ár í stjórn unglinganefndar Golfklúbbs Akureyrar.
- Þrjú ár í stjórn Djassklúbbs Akureyrar.
- Hef átt sæti í ótal nefndum innan Menntaskólans á Akureyri.
- Hef fóstrað fjölda unglinga, hvort tveggja þá sem hafa átt í innri eða ytri vanda á erfiðum þroskaskeiðum og aðra sem hafa tengst mér meðal annars vegna sameiginlegra áhugamála.
- Allmargar greinar um íslenskt mál og kennslu í Skímu, tímariti móðurmálskennara og í Morgunblaðinu.
Útgefin rit:
- Orð í belg Kennslubók í munnlegri tjáningu (ásamt Hilde Helgason og Margréti Pálsdóttur.
- Þú og heima Ljóð.
- Litlar sögur Smásagnasafn.
- Kæri herra Guð, þetta er hún Anna (eftir FYNN)(þýðing úr ensku).
- Önnubók (eftir FYNN)(Þýðing úr ensku).
- Hljóðfræðivefur kennsluefni í hljóðfræði á vef.
Áhugamál:
- Tónlist af flestu tagi, ekki síst djass, klassík og vönduð dægurtónlist.
- Matargerð með ívafi frá eldhúsum um víða veröld.
- Gönguferðir og hófleg útivist.
- Garðrækt heima fyrir.
- Ræktun vináttu- og fjölskyldubanda.