::samkynhneigð::   ::rangt og rétt::   ::hommar og lesbíur::   ::í felum::   ::fordómar::
 ::jafnrétti - mannréttindi::   ::í skáp::   
:: þögnin::   ::ekki einn::   ::samband::

... jafnrétti - mannréttindi ...

Það er mannréttindamál

  • að fá að vera lesbía / hommi / tvíkynhneigður án afskipta annarra
  • að fá að vera í friði með tilfinningar sínar eins og allt annað fólk
  • að þurfa ekki að vera með merkimiða (fyrirgefðu, ég er lesbía)
  • fá að lifa á sömu forsendum og allt annað fólk
  • ekki sé gert sjálfkrafa ráð fyrir því að allir séu gagnkynhneigðir

Það eru mannréttindi að fá að VERA TIL

... bannað ...
 

Hommar mega ekki gefa blóð.
Samkynhneigðir mega ekki giftast skv. bókstaf kirkjunnar. Þeir mega núorðið vera í staðfestri sambúð.
Samkynhneigðir mega ekki frumættleiða barn (þeir mega ættleiða börn sambýlinga sinna).
Samkynhneigðum er stundum neitað um störf.
Samkynhneigðir eru stundum reknir úr vinnu.

Við ráðningu í störf er stundum spurt um kynhneigð og nýleg dæmi sýna að kynhneigð er höfð til hliðsjónar við mannaráðningar (til dæmis þegar þótti óráðlegat að ráða homma til umsjónar á sambýli).

Það er svo margt sem ekki má, en þetta er smám saman að lagast

S78N  ©svp  2002