::samkynhneigð::   ::rangt og rétt::   ::hommar og lesbíur::   ::í felum::   ::fordómar::
 ::jafnrétti - mannréttindi::   ::í skáp::   
:: þögnin::   ::ekki einn::   ::samband::

... fordómar ...

Samfélagið hefur lengi haft fordóma í garð samkynhneigðs og tvíkynhneigðs fólks. Samkynhneigðir og tvíkynhneigðir eru fyrirlitnir vegna skoðana og ranghugmynda eins og:

  • Þetta er sjúkdómur
  • Þetta er óeðli, perraskapur
  • þetta er geðveiki
  • þetta er ógeðslegt
  • þetta er ókristilegt
  • þetta er óleyfilegt

Fordómarnir virðast aðallega snúast um að fólk á erfitt með að umbera samkynhneigða sem pör, það á miklu auðveldara með að umbera samkynhneigða einstaklinga:

  • fólki þykir óþægilegt að sjá einstaklinga af sama kyni leiðast, faðmast, kyssast.
  • fólk veltir sér upp úr hugmyndum um kynlíf samkynhneigðra, án þess ef til vill að vita hvort eða á hvern hátt það er frábrugðið öðru kynlífi.

Hvort tveggja er þetta eitthvað sem bregður út af þvi sem algengast er, hefðbundið. Samsetning paranna er öðruvísi.

Fordómar stafa af því að fólk ætlast yfirleitt til að allir séu eins og það sjálft er:

  • það er með góðum vilja hægt að lesa úr kennisetningum trúarbragða að karl og kona eigi að vera par
  • sumar trúarstofnanir hamast gegn samkynhneigð
  • sértrúarsöfnuðir þykjast geta afhommað fólk (andstæðingarnir segja að þar sé eingöngu verið að tryggja læsingarnar svo að fólk komist síður út úr skápum sínum)
  • sum samfélög vinna gegn því að samkynhneigðir öðlist sama rétt og aðrir borgarar.

Af hverju þessi afskiptasemi?
Kemur fólki við hvort einhver er samkynhneigður og annar gagnkynhneigður?
Eru allir spurðir um kynhneigð sína?
Er bara spurt um kynhneigð fólks ef grunur er um samkynhneigð?

S78N  ©svp  2002