|
::samkynhneigð:: ::rangt
og rétt:: ::hommar
og lesbíur:: ::í felum:: ::fordómar:: |
|
... samkynhneigð ...
|
|
Nokkur
atriði um líf og tilveru samkynhneigðra í nútímasamfélagi
Kynning á vegum S78N, Norðurlandshóps Samtakanna 78 |
|
|
| Samkynhneigð er: |
Langalgengast er að strákur verðir hrifin af stelpu og stelpa verði hrifin af strák. Úr þessu verða þessi hefðbundnu pör, hvort af sínu kyni. Gagnstæð kyn. Þetta fólk er kallað GAGNKYNHNEIGT. En það eru ekki allir svona. Sumir eru skapaðir öðruvísi. Strákur getur elskað strák og stelpa elskað stelpu. Úr því verða líka pör, strákur með strák eða stelpa með stelpu. Sama kyns. Þau eru kölluð SAMKYNHNEIGÐ. Línurnar eru ekki alveg svona skýrar, það er ekki bara svart og hvítt heldur líka eitthvað þar á milli. Þeir sem hneigjast til sama kyns á einum tíma og til andstæðs kyns á öðrum eru kallaðir tvíkynhneigðir. Algengt? Þetta segir ekki alla sögu. Kynhneigð og kynhegðan eru ekki eitt og sama tóbakið. Mun fleiri segjast í könnunum hafa reynt kynlíf með einstaklingum af sama kyni en þeir sem telja sig samkynhneigða. |
|
S78N ©svp 2004
|