Hrafnkels saga - enn styttri
1. kafli. Hallfreður fer til Íslands og barnið Hrafnkell með. Nemur land á Breiðdal, síðan á Geitdal (draumur) og loks á Hallfreðarstöðum í Hróarstungu.
2. kafli. Hrafnkell ríður um dali, finnur dal upp af Jökuldal, semur við föður sinn og byggir Aðalból, eignar sér dalinn en gefur mönnum land og tekur goðorð yfir þeim. Kallaður Freysgoði, gaf Frey allt til hálfs á móti sér, harður höfðingi, neyðir Jökuldæli til goðorðs síns, vígamaður og bætir engan mann.
3. kafli. Kynntur Bjarni í Laugarhúsum, ríkur bóndi (ekki höfðingi), á synina Sám á Leikskálum og Eyvind farmann. Kynntur Freyfaxi.
4. kafli. Kynntur Þorbjörn á Hóli, bróðir Bjarna. Fátækur barnamaður, faðir Einars. Hann vill að Einar fari í kaupamennsku vegna fátæktar heima, þeir fara til Hrafnkels, hann er búinn að ráða í allar stöður nema vantar smalamann í sel. Einar tekur því og Hrafnkell setur skilmála um að Einar megi nota öll hross nema Freyfaxa. Það verði hans bani að brjóta.
5. kafli. Einari gengur vel til miðsumars, þá vantar fé og allir hestar fælast nema Freyfaxi. Einar tekur hann og ríður um allt en finnur ekkert fyrr en heima við selið, þar sem hann fann ekkert fyrst. Hesturinn rennsveittur, tekur á rás heim á Aðalból og engu líkara en hann segi Hrafnkeli að nú hafi Einar svikið loforðið um hestana. Hrafnkell segir hestinum að fara til baka.
6. kafli. Hrafnkell sefur nóttina, fer ekki tafarlaust. Klæðist síðan bláu, fer og ræðir við Einar og heggur hann svo, lætur dysja hann þar, fer heim og lætur fréttast.
7. kafli. Þorbjörn fréttir víg Einars, fer og biður bóta en Hrafnkell segist aldrei bæta menn. Þykir þetta þó óvenjuvont mál, býðst til að sjá Þorbirni fyrir bústofni, útvega börnunum vinnu og gefa honum hvað sem hann lysti úr búi sínu. Þorbjörn vill það ekki heldur kýs málaferli. Fer til Bjarna bróður en hann segist ekkert geta gert í málum. Þorbjörn skammast, fer til Sáms, sem vill að Þorbjörn taki tilboði Hrafnkels. Hann nýr Sámi um nasir aumingjaskap og ættarsvik ef hann taki ekki málið að sér og Sámur neyðist til þess heiðurs síns vegna.
8. kafli. Sámur lýsir vígi, Hrafnekli finnst það hlægilegt. Sámur fer um og tryggir sér menn til að votta vígið. Hrafnkell safnar liði og fer með 70 manns á Þingvöll. Sámur fer með fáa menn. Hrafnkell fréttir af Sámi á þinginu og finnst það hlægilegt. Sámur fer um með Þorbirni og reynir að fá stuðning þingmanna en fær engan. Þeir eru daprir.
9. kafli. Þorbjörn andvaka, vekur Sám og þeir fara út. Þorbjörn vill gefast upp, Sámur segir það of seint. Sjá menn, einn með ljósan lokk í hári Þorkell Þjóstarson úr Þorskafirði, nýkominn heim frægðarför til Miklagarðs, á bræðurna Þormóð og Þorgeir. Þorkell vill hjálpa. Leggja á ráðin.
10. kafli. Gamansagan um gamla manninn sem hrasar um fót með graftarkýli og samanburður á sársaukum. Þorkell og Þorgeir sjá alla ókosti á að fara gegn Hrafnkeli, langur samningafundur og drykkja og Þorkell tekur að sér stjórnina.
11. kafli. Tími líður og málið er tekið til dóms. Hrafnkell mætir ekki en Sámur flytur mál sitt vel og þarna koma Þjóstarsynir með mikið lið af Vesturlandi. Hrafnkeli gert viðvart en hann sér að hann er of seinn, hefur ekki lið til að hleypa upp þingi og ríðuir heim - fyrsti ósigur hans, en Sámur ofmetnast og gengur um á þingi eins og sperrtur hani.
12. kafli. Þingi lýkur, Þorskfirðingar ákveða að fara með Sámi austur til að tryggja að hann komi fram dómnum (ekkert framkvæmdavald nema hjá málsaðilum sjálfum).
13. kafli. Fara austur með 40 manns. Sámur stýrir aðför að Aðalbóli um fótaferðatíma, Hrafnkell tekinn, biður mönnum sínum griða, Sámur og félagar taka þá, stinga á hásinar þeirra og binda þá saman með reipum og hengja öfuga upp. Heyja féránsdóm. Sámur býður Hrafkeli 2 kosti, deyja eða fara burt og koma aldrei aftur og gera aldrei tilkall til Aðalbóls. Hrafnkell kýs að lifa en Þorgeir skammar Sám fyrir að gefa honum líf.
14. kafli. Hrafnkell sest að austan Fljótsdalsheiðar, kaupir Lokhillu og reisir þar Hrafnkelsstaði.
15. kafli. Sámur býr á Aðalbóli, menn þar um slóðir misglaðir yfir yfirmannsskiptunum. Sámur og Þorskfirðingar farga Freyfaxa. Sámur setur Þorbjörn á Leikskála.
16. kafli. "Eg hygg það hégóma að trúa á goð." Hrafnkell auðgast og verður voldugur og vinsælli en áður. Sámur vinsæll, enda vægur - en skartsmaður mikill
17. kafli. Eyvindur Bjarnason kemur út, glæsilegur frá útlöndum. Sámur tekur á móti honum og fer heim og sendir hesta undir varning. Griðkona þvær léreft - hleypur inn og egnir Hrafnkel til að fara og drepa Eyvind. Safnar liði. Átján Blá klæði Hrafnkels.
18. kafli. Eyvindur og þeir ríða upp á heiðina, strákur sér eftirför, Eyvindur vill ekki flýja menn sem hann á ekki sökótt við. Bardagi og allir menn Eyvindar falla, skósveinn fær líf, fer og segir Sámi. Hann kemur á vettvang. Gefst upp á eftirför.
19. kafli. Sámur fer með varning Eyvindar heim á Aðalból, Hrafnkell fer um nóttina, tekur Sám í rekkju og býður honum tvo kosti, að deyja eða sitja á Leikskálum, gamla bænum sínum og taka með sér aðeins það sem hann réttilega á. Sámur þiggur líf. Þórir Hrafnkelsson tekur við Hrafnkelsstöðum.
20. kafli. Sámur var heima, fer svo leiðangur vestur í Þorskafjörð og vill fá þá bræður til að hjálpa sér. Þeir segja að nú sé nóg, hann hafi ekki viljað fullna verkið og nú hefnist honum fyrir. Þeirra hlut sé lokið. Hann megi koma vestur, en hann vill það ekki, þiggur gjafir og fer heim og býr undir eftirliti Hrafnkels til æviloka. Hrafnkell hélt virðingu sinni til andláts. Ásbjörn sonur hans tók við á Aðalbóli. Og þá er sagan öll.
MA - mars 2001 - svp
Hrafnkels saga Freysgoða
Nokkrir áherslupunktar og umfjöllunarefni:1.
Sámur og Hrafnkell, persónuleikar.2.
Stéttir.
a. Höfðinginn Hrafnkell af ætt landnámsmanns
b. Bóndinn Sámur, sonur bóndans Bjarna
c. Þorskfirðingarnir þrír
d. Ekki hægt að fara milli stétta, bóndi ER bóndi o.s.frv.
e. Konur?3.
Sjálfstæði og samtök
a. Sámur fær fáa til fylgis
b. Hrafnkell fær fjölmenni
c. Óvænt hjálp úr ókunnri átt
d. Nauðsyn samstöðu og liðssafnaðar í þessu samfélagi4.
Einstaklingurinn og ættin.
a. Hrafnkell - faðir og synir - bein lína
b. Bræðurnir Bjarni og Þorbjörn og synir þeirra
c. Synir manna. En dætur?5.
Samfélagsgerðin
a. Alþingi
i. Löggjafarþing
ii. Dómþing
b. Framkvæmdavaldið einstaklingsbundið
c. Hver maður herra sinnar jarðar. Ekkert sameiginlegt nema Alþingi
(hér er ekki fjallað um fjórðungsþingin - sýna fjóðrungaskiptingu)6.
Trúin
a. Heiðni
i. Freyr og samband hans og Hrafnkels
b. Örlög.
i. Voru það ill örlög Hrafnkels að trúa á Frey
ii. Urðu ef til vill viðhorfsbreytingar á tíma sögunnar?
c. "Eg hygg það hégóma að trúa á goð"
i. Er sagan dæmisaga um að kristni sé heppilegri en heiðni?
ii. Er sagan skrifuð af kristnum manni?7.
Boðskapur
a. Trúarlegur
b. Veraldlegurmars 2001 - svp