Sverrir Páll Erlendsson
Ásvegi 29 – 600 – Akureyri   
svp@ma.is - www.ma.is/svp    Sími 46 222 74      GSM 86 287 42

 

      Akureyri 21. september 2000

  

Björn Jósef Arnviðarson sýslumaður
Akureyri

Komdu sæll. 

Þetta bréf er ekki kæra heldur ákveðin ábending að nokkuð gefnu tilefni. 

Í auglýsingablaðinu Dagskránni sem gefið er út á Akureyri hefur um allmargra mánaða skeið tíðkast að í auglýsingum frá vínveitingastöðum er getið um alls kyns tilboð, sem án nokkurs vafa fela í sér að verið er að auglýsa áfengi, jafnvel á afsláttarkjörum og allt upp í að vera ókeypis. Ég leyfi mér að halda því fram að þarna sé verið að auglýsa áfengi vegna þess að það er varan sem vínveitingahús hafa einkum til sölu. 

Vínveitingahúsið Sjallinn auglýsir nú í Dagskránni 36. tbl. 32. árg. 20.sept. – 27. sept. 2000:

Enginn þarf að fara í grafgötur um það að Stór úr krana er bjór og þarna er ekki verið að selja bakka undir brauð eða kökur eða tómar skolpfötur. Þetta er hins vegar sama aðferð til að auglýsa vín og verðlag á því og afsláttarkjör á tilteknum tímum og lengi hefur verið stunduð af vínveitingastöðum á borð við Club 13 og Underground-staðinn í kjallara gamla Hótels Akureyri. 

Í sama tölublaði Dagskrárinnar er einmitt auglýsing frá Club 13 Á fimmtudagskvöld er afar hagkvæmt að fara þangað:

Hvað skyldi vera frítt úr dælunni annað en bjór? Og af hverju ætli sé frítt áfengi þetta kvöld? Og hvers vegna ætli stór úr dælu kosti bara 250 krónur á fimmtudagskvöldið en 400 krónur á föstudag og laugardag? Stór úr krana í Sjallanum er einmitt á 290.- á fimmtudagskvöldi líka. Eru þetta góðgerðarstofnanir eða er hugsanlegt að þarna sé verið að keppa um börn undir 18 ára aldri? Það er sagt að stundum fái þau inngöngu á þessa staði og svo hefur a.m.k.sést á myndum í auglýsingum. Hvað eru 5 í fötu? Hvð er Thule 0,5 l? Varla er það undanrenna eða kaffi! Ætli Millertime sé kex til að hafa með kaffinu og magasínskotin – ja guð veit hverju hægt er að ljúga til um þau. 

Af því að þú ert nú sýslumaðurinn hér á Akureyri finnst mér að þú þurfir að láta athuga þetta. Ég held nefnilega að þessir vínveitendur séu að gera það sem er bannað með lögum: Að auglýsa áfengi. Og ég er ekki einn um að halda það – þetta vita bókstaflega allir. 

Og í leiðinni væri bæði rétt og sanngjarnt að þú fengir vísa menn til að skoða myndir á myndasíðu, sem er reyndar blaðsíða 24, ótölusett, í þessu sama Dagskrárblaði. Þetta eru myndir sem sagðar eru teknar á laugardagskvöldi í Sjallanum.  Þarna ætti að kanna hvort rétt sé að myndirnar séu teknar á þessum stað og jafnframt að athuga aldur þeirra sem festir hafa verið á filmu og einnig hvers vegna fólk sem ekki hefur náð tilskildum lágmarksaldri er þar. 

Ef það reynist rétt sem ég hef hér sagt finnst mér að þú ættir í krafti þíns embættis að banna Dagskránni að birta svona auglýsingar, banna vínveitingahúsunum að auglýsa áfengi og banna þeim jafnfamt að hleypa inn fólki sem ekki hefur aldur til að vera þar og selja því áfengi eða gefa þeim það. 

Með kveðju

Sverrir Páll