| Svolítil
áfangaskýrsla um verkefnið Í sambandi |
|
Mig langar til að segja ögn frá því sem gerst hefur í verkefninu Í sambandi á haustönninni. Verkið hefur farið hægt og sígandi af stað og við höfum náð ákveðnum árangri en tilrauninni er fjarri lagi lokið, hún heldur áfram á vorönn. Verkefnaannir og próf framundan slá þessu á frest þar til í febrúar. Um verkefnið sagði meðal annars í áætlun: Í afar stuttu máli snýst þetta verkefni um að gera tilraun með fjölliða samskipti meðal kennara og nemenda í heilum bekkjum og / eða hópum innan bekkja í verkefnavinnu og öðrum námssamskiptum, að nemendur nýti sér jöfnum höndum þrjár leiðir í samskiptum og vinnslu verkefna, ef frá er talið internetið eða vefurinn. Þeir noti tölvupóst, til meiri háttar samskipta og til að fara með og flytja milli sín efni í einhverju magni. Þeir noti samskiptatækið iPulse frá OZ.com til nánari samskipta og umræðna, en iPulse gefur kost á spjallhópum stærri og smærri og líkist að nokkru leyti irki nema hvað unnt er að hafa mun meiri stjórn á iPulse. Þeir noti svo GSM-síma með SMS-boðtækni til að hafa enn nánara samband, en unnt er að stilla iPulse þannig að sé einhver aðili að hóp ekki viðstaddur (við tölvu) þegar samskipti fara fram berast boð til GSM-síma hans. GSM er þannig vaki og getur kallað aðila til starfa. Bekkurinn sem valdist til að vinna verkefnið með mér er 2. bekkur G. Þetta er félagsfræðibrautarbekkur en enginn annar félagsfræðibekkur hefur fengið sérstakt upplýsingatækniverkefni eða verið fartölvubekkur. Þetta er ekki mikill tölvubekkur, 2-4 nemendur koma af og til með fartölvur í skólann, en allir hafa farið í gegnum áfanga þar sem kenndar eru aðferðir upplýsingatækni og tölvunotkun við þær. Allir eiga og nota GSM. Nemendur eru 21 talsins. Aðstoð
og þjónusta Landssíminn sýndi verkefninu fljótt áhuga en á haustdögum var ákveðið þar á bæ að styrkja nemendur með því að gefa þeim Frelsiskort að upphæð 2000 krónur hverjum á hasutönn til að koma til móts við SMS-notkun þeirra í verkefninu. Gefið var vilyrði fyrir fleiri Frelsiskortum á vorönn. Landssíminn veitti mér jafnframt aðgang að magnsendingum Símans og þannig get ég sent hópum smáum og stórum SMS úr tölvu minni. Þá varð að samkomulagi að Guðjón Pétursson starfsmaður GSM-lausna Símans kom norður og las nemendum fyrir mjög gagnlegt erindi um notkunarmöguleika farsíma og sýndi og lét prófa margvíslega möguleika, til dæmis hvernig nota má síma til að senda tölvupóst og hvernig nota má VIT og WAP í upplýsingaöflun og margvíslegri annarri þjónustu. OZ í Reykjavík, eigandi iPulse samskiptakerfisins hefur veitt MA aðgang að netþjóni í Reykjavík sem stýrir samskiptum og vistar þau, jafnframt því að gefa tilraunahópnum aðgang að kerfinu og veita ýmsa þjónustu því fylgjandi. Skúli Valberg Ólafsson framkvæmdastjóri OZ hefur sýnt þessu verkefni mikinn áhuga og velvilja og auk hans hafa 2 starfsmenn, Alexander McNeal kerfisfræðingur og Jóhann Vilhjálmsson kerfisstjóri sinnt verkefninu. Jóhann hefur aðstoðað við uppsetningu á iPulse og kennt í gegnum það ýmislegt um notkun þess og stillingar. Hátækni í Reykjavík veitti mér afslátt af Nokia 6110 síma til að nota í verkefninu og hefur veitt mér ráð eftir þörfum, en tengiliður við fyrirtækið er Kristinn Hreinsson sölu- og markaðsstjóri þess. Verkefnið
sjálft Nemendur vörðu nokkrum tímum í að prófa þessar nýju samskiptaleiðir, nota iPulse sem spjallrásakerfi og gera tilraunir með að búa til spjallhópa svo og að koma upp stillingum til að samkeyra farsíma og iPulse. Þetta gekk nokkuð vel en þó í nokkrum brösum og fólk hefur lært af reynslunni. Við getum sagt að við séum komin allvel yfir byrjunarörðugleikana. Við höfum notað fartölvuver skólans og tölvustofur í verkefninu auk fartölva í einkaeign. Fyrsta reglulega verkefni sem tekið var fyrir var að vinna vefleiðangur um málsögu. Þar hafa nemendur úr miklu efni á Netinu að velja og eiga að nota tölvupóst, iPulse og GSM til að prófa að vinna í þriggja manna hópum þar sem sem ekki eru alltaf allir á staðnum. Þetta virðist af því sem í ljós hefur komið ganga sæmilega, en eins og við má búast þarf að venjast nýjum tækjum og aðferðum og sníða af agnúa. Þar sem langt var liðið á önnina og ýmis önnur verkefni kölluðu að ákvað ég að slá tilrauninni formlega á frest en hvatti nemendur til að halda áfram á eigin spýtur að prófa þessi tól og tæki og gefa mér svolitla skýrslu um það í annarlok. Með þessa fengnu reynslu horfum við til vorannar og þá verður gripið til þessara nútímatækja við verkefnavinnu til dæmis í tengslum við Njáls sögu. Verður gaman að fylgjast með Gunnari, Héðni og Njáli í viðjum GSM, SMS, iPulse og tölvupósts. Ég er bjartsýnn á að þá komi skýrar í ljós hversu þessi nútímatól mega gagnast okkur við námið. Þó má segja að fullljóst sé orðið að GSM símar og SMS boð eru fjarskalega gagnleg í samskiptum kennara og nemenda og nemenda innbyrðis, ekki síður í alvarlegum efnum sem tengjast námi og störfum en í frístundum og persónulegri málum. Magnsendingar
SMS Akureyri á aðventunni 2001 Sverrir Páll |