| Fullir
krakkar – frítt brennivín |
|
Þetta
bréf er skrifað að gefnu tilefni. Með markvissum ólöglegum auglýsingaáróðri
og jafnvel brennivínsgjöfum er börnum og unglingum á Akureyri þröngvað
til áfengisnyslu. Fyrst
vil ég leyfa mér að benda á Dagskrána, auglýsingablað gefið út af Ásprenti,
sem dreift er í öll hús á Akureyri. Í Dagskránni eru jafnan auglýsingar
frá skemmtistöðum og krám á Akureyri. Þær eru undantekningarlítið brot
á lögum um áfengisauglýsingar. Þannig
er í 8. tbl. Dagskrárinnar auglýst:
Enginn
getur farið í grafgötur um það hvað hér er verið að auglýsa.
Það er hvort tveggja bjór og sterkt áfengi. Hér er ekkert leynimakk,
engar tilraunir til að draga fjöður yfir veruleikann, eins og þegar ölkrár
auglýstu léttöl. Hér eru hreinar og klárar áfengisauglýsingar frá veitingastöðum
sem gera einkum og sér í lagi út á skólafólk, ef Við Pollinn og Odd-Vitinn
eru undanskildir, og það á fimmtudagskvöldi með alls kyns sértilboðum
og útsöluverði, til þess að börnin hafi efni á að drekka sig full í miðri
skólaviku. Á
Akureyri er starfandi sjónvarpsstöð, Aksjón, kallar sig “Sjónvarp Norðurlands”
og auglýsir sig “gagnlegan miðil.” Fyrir tilviljun rakst ég þar á sjónvarpsþátt
föstudagskvöldið 18. febrúar. Þetta
á að vera “opinn" og "frjáls" og "hress"
skemmtiþáttur
þar sem tveir ungir menn á Akureyri sitja og tala saman um það sem "er
að ske" hérna á
Akureyri
"um helgina," lesa upp úr Dagskránni auglýsingar um áfengissölu
og
sértilboð vínveitingabúllanna og "kíkka" á eitt
og
annað í bæjarlífinu, en það er
aðallega
í því fólgið að hitta ungt fólk og veiða upp úr því hvar það ætlar í partí
og á fyllirí um komandi helgi. Þegar minnst er á félagsstarf, þar með
talið í skólum,
sem ekki tengist öl- eða víndrykkju er það gert í niðurlægjandi tóni,
með grettum og niðrandi
handahreyfingum
sem gefa til kynna hvað það sé hallærislegt. Þetta
er reyndar ótrúlega drykkjuboltalegur skemmtiþáttur, hann heitir “Í annarlegu
ástandi” og nafnið eitt sýnir þann hug er að baki býr. Allt er gert til
að sýna að drykkja, partístand, fyllirí og kráarseta sé eftirsóknarvert
fyrir unglinga. Í prentaðri dagskrá sjónvarpsstöðvarinnar er stjórnandinn
sagður einn, “Doddi tekur púlsinn á mannlífinu.” Og hver er sá púls? Þarna
voru til dæmis 18. febrúar sýndar myndir frá vínbörum á fimmtudagskvöldinu
(kvöldinu áður) og það sér hver heilvita maður að verið er að selja alltof
ungum krökkum áfengi. Einnig þótti ástæða til að sýna alllangt myndskeið
af útúrdrukknum framhaldsskólanemum
á klósetti veitngastaðar og ekki miklar líkur á að þeir hefði heilsu til
að stunda nám sitt morguninn eftir. Í
þættinum 18. febrúar var tilkynnt rækilega að næsta fimmtudag yrði “Party
á Dátanum.” Þangað
yrðu allir að koma,
þar
yrði fjör og alls konar skemmtun og svo yrði "frítt að drekka,"
sögðu
þáttarstjórarnir og gerðu sig mjög í andliti og krepptu fingur
eins
og Ameríkanar gera til að tákna gæsalappir eða þversögn og sögðu
saman
"GOOOOOOOOS!!!"
Með öðrum orðum, hér átti að gefa unglingum áfengi á opinberum
vínsölustað. Auglýsing
í Dagskránni 8. tbl. tekur undir þessa frétt. Þar er auglýst Party á Dátanum
fimmtudagskvöld, eins og fyrr segir. “Í annarlegu ástandi býður þér í
party á Dátanum,” segir þar og boðið er upp á tískusýningu og fleira,
síðan segir: “Teitið byrjar kl. 22.00 og eru veitingar í boði til kl.
23.00! Þyrstir koma, þyrstir
fá.” Nú
ætti enginn að láta sér koma til hugar að þennan klukkutíma hafi það sem
í boði var ókeypis og þáttarstjórarnir vikuna áður kölluðu “Goooooooooos!!!”
verið saklausir kjarnadrykkir eða Valash.
Í
þættinum Í annarlegu ástandi 25. febrúar, sem ég sá aðeins að hluta, sá
ég meðal annars innskot frá þessu
gjafabrennivínskvöldi,
partíi hins “gagnlega miðils” á Dátanum. Þarna var til dæmis haldin keppni,
svokölluð
skotkeppni, sem var í því fólgin að hlaupa um þveran sal, tæma
úr
staupi af lakkrísbrennivíni (skoti), hlaupa til baka til sætis og koma
aftur og tæma annað
og þannig áfram, alls 5 eða 6 snafsa og sá vann sem gerði þetta á stystum
tíma.
Sigurvegarinn, sem kallaður var skotmeistarinn, reyndist vera stúlka fædd
10. september 1981.
·
Það
er fullkomlga ólíðandi að fjölmiðlar og veitingastaðir þverbrjóti áfengislög
eins og hér hefur verið lýst og viðgengist hefur misserum saman.
·
Það
er jafnframt óþolandi að horfa upp á það í sjónvarpi að börnum og unglingum
sé selt áfengi á opinberum vínsölustöðum. ·
Ennfremur
er fráleitt og fáránlegt að sjónvarp sem kallar sig “gagnlegan miðil”
skuli láta það viðgangast að halda úti vikulegum skemmtiþætti sem byggist
nær eingöngu á því að gera áfengisneyslu barna og unglinga spennandi og
eftirsóknarverða. ·
Þar
að auki er skelfilegt að þurfa að horfa upp á þann glæp að vínsalar skuli
egna svo fyrir unglingum undir áfengiskaupaaldri að halda þeim sérstakar
hátíðir þar sem þeim er gefið áfengi eða bjóða þeim áfengi á afsláttarverði
til að ginna þá til drykkju. ·
Enn
verður að telja alvarlegan glæp af hálfu þeirra sem reka vínsölustaði
á Akureyri að freista barna og unglinga með áfengi og gera með því vísvitandi
tilraunir til að eyðileggja fyrir þeim skólanámið með því að halda þeim
sérstakar áfengishátíðir í miðri skólaviku. 28.
febrúar 2000 Greininbirtist í Degi í marsbyrjun 2000 |