| Enn skal selja börnum brennivín |
|
Í frétt á Vef MA
segir enn fremur að lögreglan hafi komið á staðinn og tekið skýrslu um
málið. Þá er haft eftir aðstoðarskólameistara að töluverð brögð hafi verið
að því að vínveitendur hafi fengið nemendur til að dreifa auglýsingum
og boðsmiðum meðal skólafélaga sinna. Þessi frétt er tekin fyrir í Morgnblaðinu 15.
nóvember og í framhaldi af því rætt við framkvæmdastjóra Sjallans, eins
af auglýsendunum. Skiljanlegt er að hann kannist ekki við sök sína, en
skýringar hans eru forvitnilegar og óljósar. Má auglýsa allt, alls staðar Lítum á málið.
Ef maðurinn sendir bækling með áfengisauglýsingum í einkapósti út fyrir
húsið, er hann þá ekki að brjóta lögin, ef
hann skilur þau þannig að hann megi auglýsa innanhúss á veitingastaðnum?
Ef framkvæmdastjórinn lætur bæklinginn liggja frammi á veitingahúsi,
þar sem hann má hleypa inn fólki sem er 18 ára en ekki selja því áfengi
nema það sé tvítugt, er hann þá að dreifa áfengisauglýsingu til fólks
undir áfengisaldri, eða bannar hann 18-20 ára fólki að taka bæklinginn? Hvernig í ósköpunum
stendur á því að bæklingur þessi lá í bunkum á vídeóleigum á Akureyri
umrædda helgi? Telur maðurinn að áhugasamir gestir hússins hafi tekið
með sér bæklinga í hundraðatali
eða safnað saman póstsendingum og af tilviljun skilið óvart eftir
nokkra tugi af bæklingum hér og nokkra tugi þar?
Og hvernig stendur á því að Lögreglan á Akureyri lagði hald á bunka
með 50 svona bæklingum í Menntaskólanum á Akureyri eftir að margir nemendur
höfðu tekið sér eintak af honum þar sem hann lá frammi á Sal skólans og
gerðu síðan viðvart að þarna væri á ferð ólögleg auglýsing. Hvernig komust
bæklingarnir þangað? Ekki bara einn sem hefur slæðst með einhverjum Sjallagesti
heldur bunkar af þeim? Er ekkert að marka lögin sem segja að áfengisauglýsingar
séu bannaðar? Leitin að hinum seka Hvað segir lögreglan um
þetta mál, er hún að rannsaka það og hefur fundist sökudólgur? Er hann
í Sjallanum eða jafnvel Flugfélagi Íslands?
Eða kannski krakkinn sem hefur tekið þetta að sér? Framkvæmdastjóri Sjallans
segir í Morgunblaðinu að hann skilji ekki kæru aðstoðarskólameistara.
Samt svarar hann henni efnislega eins langt og það nær og vísar málinu
frá sér, en eftir stendur spurningin um það hvernig bæklingur með bönnuðu
auglýsingaefni kemst í bunkum frá honum og samstarfsfyrirtækjum hans inn
í skóla og á vídeóleigur. Skefjalausar árásir á
unglinga Áfengi, vínveitingar og
veitingahús eru eru sjálfsagðir þættir í menningu nútímasamfélags. En
skefjalausar árásir vínveitenda á börn og unglinga og áróðursstríð sem
þeir beina að æskufólki sem ekki hefur aldur til að umgangast eða neyta
söluvöru þeirra er með öllu ótækt. Svona ólöglegt athæfi verður að stöðva.
Og því brýnna er það sem fyrirtæki, sem vilja láta telja sig virðingarverð,
eiga í hlut. Sverrir
Páll Birtist
íó Morgunblaðinu í nóvemberlok 2000 |